Laun Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, lækka um tæp 15 prósent um áramótin samkvæmt úrskurði Kjararáðs í morgun. Laun þingmanna lækka um tæplega 7,5 prósent. Geir H. Haarde fer úr 1100 þúsund krónum í 935 krónur á mánuði og aðrir þingmenn fara í 855 þúsund krónur. Þetta kom fram í hádegisfréttum hjá RÚV í dag.
Í lok nóvember beindi forsætisráðherra þeim tilmælum til kjararáðs um að lækka laun æðstu ráðamanna þjóðarinnar um 5-15 prósent. Ráðið hafnaði þeirri beiðni og sagðist ekki hafa lagaheimild til þess. Stjórnvöld settu lög á alþingi 20. desember þar sem kjararáði var falið að lækka laun skjólstæðinga sinna um áðurnefnd 5-15 prósent.
Kjararáð hefur hist nokkrum sinnum í kjölfarið, nú síðast í morgun. Laun Geirs eru því nú tæplega 1100 þúsund krónur á mánuði en eftir breytingu 935 þúsund krónur. Aðrir ráðherrar þurfa einnig að þola kjaraskerðingu um allt að 14 prósent. Þeir eru í dag með 990 þúsund krónur í laun á mánuði en eftir breytingu verða þau 855 þúsund krónur. Laun þingmanna lækka síðan um 7,5 prósent. Fara úr 560 þúsund krónum í 520 þúsund krónur.
Ekki var tekin ákvörðun um launalækkanir annarra ráðamanna, svo sem, dómara og forstjóra.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna