ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Börn með krabbamein fengu tvær og hálfa milljón

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:21 › 27. desember 2008
Frá afhendingu ágóðans af tónleikunum síðdegis.

Frá afhendingu ágóðans af tónleikunum síðdegis. Rakel

Jólatónleikar til styrktar Félagi krabbameinssjúkra barna skiluð rúmlega 2,4 milljónum króna. Einar Bárðarson stóð fyrir tónleikunum nú eins og undanfarin ár. Hann er hæstánægðúr með afraksturinn. ,,Ég er himinlifandi með að þetta skuli vera hægt núna, þrátt fyrir kreppuna," segir Einar sem alls hefur safnað með þessum hætti rúmlega 27 milljónum króna í þágu þessa málefnins.
Fjöldi tónlistarmanna gaf vinnu sína til að leggja málinu lið. Og gestirnir streymdu í Háskólabíó síðdegis í dag til að leggja sín lóð á vogarskálarnar og gefa börnunum þessa síðustu jólagjöf ársins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.