ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Bættu bólfélagann

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:36 › 27. desember 2008
Mynd: Photos

Fyrst birt í Nýju lífi
Texti: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Varla er hægt að hugsa sér meiri vonbrigði en misheppnað kynlíf eftir vel heppnað stefnumót. Slæmir kossar, óþægilegt dónatal eða guð má vita hvað. Sumir hafa enga þolinmæði fyrir slíkt. Aðrir vita að það er þess virði að doka við og leiðbeina viðkomandi í rétta átt.

Vondur koss
Kossar eru sennilega lykillinn að góðu kynlífi. Kossinn segir til um hvað koma skal. Og vondur koss er verri en allt.
Tæknin skiptir auðvitað máli, en það skiptir ekki minna máli að lykta vel. Einn vinur minn var að hitta stelpu sem drakk mikið kaffi yfir daginn. Hann drakk ekki kaffi og sterk lyktin sem lagði frá munninum á henni þegar hún kom heim á kvöldin var að fara með hann. Hann tók upp á því að tyggja sjálfur piparmyntumola sem eyða andfýlu. Og gefa henni með sér. Það hjálpaði aðeins til, en þó ekki nægilega og á endanum missti hann áhuga á henni. Andfýlan drap kynhvötina.
Síðar var hann að kyssa stelpu sem tróð tungunni harkalega upp í hann og sveiflaði henni þar fram og til baka. Þar sem hann var virkilega heitur fyrir þessari stelpu ákvað hann að reyna að leiðbeina henni. Hann kyssti hana nákvæmlega eins og hann vildi að hún myndi kyssa hann, hvíslaði svo í eyrað á henni: „Kysstu mig svona.“ Og hún gerði það. Án þess að hún yrði þess vör, kenndi hann henni að kyssa.

Einn of fljótur
Vinkona mín bauð félaga sínum heim eftir nokkur frábær stefnumót. Þau voru varla farin að fækka fötum þegar hann fékk það. Hann var vandræðalegur og þau bæði pirruð. En hún gaf hann ekki upp á bátinn. Næst þegar hún bauð honum heim, klæddi hún sig úr fötunum á rólegan og kynþokkafullan hátt og sagði honum að klára sig af á meðan hún dansaði fyrir hann. Og á meðan þau biðu eftir því að hann yrði klár í slaginn á ný, einbeitti hann sér að henni. Þau nutu þess bæði. Með tímanum varð hann öruggari gagnvart henni og slakaði betur á, sem hjálpaði honum að vinna tíma.

Annar of seinn
Önnur vinkona mín var að hitta mann sem var mikið í mun að hún fengi fullnægingu. Og þótt hún fengi hana hélt hann samt áfram. Og áfram. Og áfram. Og áfram. Á meðan hann gat haldið endalaust áfram varð hún úrvinda og aum. Hún vildi ekki segja neitt til að særa hann ekki svo hún beit í varirnar og vonaði heitt að þetta tæki enda. Þar til henni datt í hug að biðja hann, með kynþokkafullu hvísli í eyrað, um að fá það með henni. Og viti menn. Það virkaði. Honum fannst tilhugsunin svo spennandi að hann kom nánast alltaf með henni.

Kanínuhopparinn
Einu sinni var þessi sama vinkona mín rosalega skotin í strák. En kynlífið var stirt og vandræðalegt. Hann lagðist ofan á hana, hamaðist eins og kanína á spítti og tók svo pásu þegar hann var við það að koma. Svo byrjaði hann aftur. Svona gekk þetta nokkrum sinnum þar til hún heyrði hann kalla: „Ég er að koma.“ Hún var miður sín. Og fékk lítið út úr þessum æfingum þar sem hún fann aldrei taktinn með honum. Hún ákvað samt að gera eitthvað, í stað þess að hætta með honum, enda búin að bíða þetta lengi. Hún ætlaði að láta það ganga. Næst þegar eitthvað lá í loftinu tók hún stjórnina. Í stað þess að leyfa honum að hamast þar til hann var að springa fór hún rólega að honum. Byggði upp spennu sem stigmagnaðist. Þar til hann fékk bestu fullnægingu sem hann hafði upplifað. Í kjölfarið hældi hún honum ítrekað fyrir góða frammistöðu með setningum sem fólu í sér leiðbeiningar eins og: „Mér finnst svo gott þegar þú finnur taktinn með mér.“

Dónatal sem ofbýður
Einn félagi minn hefur gaman af dónatali. Honum er þó minnisstætt atvik sem hann upplifði þegar hann bað vinkonu sína um að segja sér eitthvað svæsið. Þau höfðu verið að hittast í nokkrar vikur. Fram að þessu hafði hún tekið þátt í talinu, með semingi þó, en hafði aldrei átt frumkvæðið að því. Hann gerði bara ráð fyrir því að hún væri feimin við þetta og ætti erfitt með að byrja. En þetta kvöld höfðu þau drukkið vín og hún var ölvuð. Og þegar hann byrjaði að tala, sneri hún sér við og hastaði á hann: „Þegiðu, ég get ekki hlustað á þetta lengur!“ Honum brá í brún um leið og það rann upp fyrir honum að hún hafði aldrei fílað þetta. Skömmustulegur hætti hann öllu dónatali við hana. Síðan hefur hann spurt bólfélaga sína hvort þeim líki þetta áður en hann byrjar að tala.
Kannski virkar eitthvað af þessu fyrir þig. Kannski ekki. En það er sama hvað þú gerir, ekki gera ekki neitt. Gott kynlíf er vinna. Og stöðug vinna ef það á að haldast gott í langtímasambandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.