Í kringum 120 Palestínumenn eru látnir og yfir 200 særðir eftir að Ísraelar hófu loftárásir á Gaza-ströndinni í morgun. Mörg flugskeyti hafa lent á svæðinu meðal annars á lögreglustöð. „Margir eru látnir og særðir, fólk hleypur á götunum,“ er haft eftir starfsmanni CNN sem er á staðnum. Hann segir að árásirnar séu þær verstu og stærstu sem hann hefur séð í áratugi.
Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Tzipi livni, utanríkisráðherra, hótuðu fyrir nokkrum dögum að gera stóra árás á svæðið og myndu ekki hika við að beita her gegn liðsmönnum Hamas og öðrum samtökum Palestínumanna.
Sadi Masri, 57 ára verslunareigandi í Gaza-borg, þarf að verja andlit sitt fyrir ryki eftir árásina. „Sonur minn er horfinn, sonur minn er horfinn,“ segir Sadi sem sendi son sinn til að kaupa fyrir sig sígarettur mínútum áður en árásirnar hófust og finnur hann ekki eftir átökin. Mikill ótti hefur gripið um sig hjá borgurum á svæðinu.
Sex mánaða vopnahléi Hamas og Ísraela lauk þann 19.desember. Gaza-ströndin og Vesturbakkinn liggja sitthvoru megin við Ísrael og hafa verið undir stjórn sitthvorrar paletínsku fylkingarinnar þar sem Hamas stýrur Gaza ströndinni og Fatah Vesturbakkanum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu