ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Frá Hummer á bömmer

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:39 › 23. desember 2008
Ármanni er margt til lista lagt.

Ármanni er margt til lista lagt.

Ármann Þorvaldsson hefur ekki setið auðum höndum í London þrátt fyrir fall Kaupþings. Hann hefur aðstoðað skilanefnd bankans og ku, samkvæmt heimildum Séð og Heyrt, sitja sveittur við bókaskrif þar sem viðfangsefnið er bankahrunið og gjaldþrot. Vinnutitillinn er viðeigandi, From Billionaire to Bankruptcy. Á íslensku gæti titillinn útlagst, Frá Hummer á Bömmer.

Ármann, sem er menntaður sagnfræðingur, hefur áður sett saman bók; hann skrifaði sögu Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur, TBR, árið 1999.

Nánar í Séð og heyrt



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.