Tíu bækur voru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í kvöld, fimm í flokki fagurbókmennta og fimm í flokki fræðibóka og bóka almenns efnis.
Í fyrrnefnda flokknum voru tilnefndar Rán eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur, Ofsi eftir Einar Kárason, Skaparinn eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur, Skuggamyndir úr ferðalagi eftir Óskar Árna Óskarsson og Rökkurbýsnir eftir Sjón.
Í flokki fræðibóka og bóka almenns efnis voru tilnefnd Hjörleifur Guttormsson fyrir Árbók Ferðafélags Íslands 2008, Ingunn Ásdísardóttir og Kristín Ragna Gunnarsdóttir fyrir Örlög guðanna, Loftur Guttormsson fyrir ritið Almenningsfræðsla á Íslandi 1880 til 2007, Vilhjálmur Árnason fyrir Farsælt líf, réttlátt samfélag. Kenningar í siðfræði, og Þorvaldur Kristinsson fyrir ævisögu Lárusar Pálssonar leikara.
Vinningshafar verða tilkynntir í lok janúar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna