ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Sparisjóðsstjóri á ofurlaunum

17:00 › 2. desember 2008
Ásgeir Sólbergsson segir að laun starfsmanna Sparisjóðs Bolungarvíkur verði lækkuð um áramótin en ekki hafi verið tekin ákvörðun um hversu mikið launin lækka.

Ásgeir Sólbergsson segir að laun starfsmanna Sparisjóðs Bolungarvíkur verði lækkuð um áramótin en ekki hafi verið tekin ákvörðun um hversu mikið launin lækka.

Ásgeir Sólbergsson fær 1,34 milljónir á mánuði fyrir starf sitt sem sparisjóðsstjóri í Bolungarvík. Stofnfjáreigandi við sparisjóðinn gagnrýnir harðlega að slík laun séu greidd í núverandi efnahagsástandi og vill að þau verði lækkuð þegar í stað.

„Við stofnfjáreigendur höfum eðlilega áhyggjur og viljum að hagrætt sé í rekstrinum. Annars er þetta okkar tap. Það er ekkert útséð með hvort þessir litlu bankar fari á hausinn,“ segir Elías Kristjánsson, stofnfjáreigandi í Sparisjóð Bolungarvíkur. Honum blöskrar launakostnaður hjá sparisjóðnum en Ásgeir Sólbergsson sparisjóðsstjóri var með 16 milljónir í árslaun fyrir störf sín þar á liðnu ári eða 1,34 milljón á mánuði.

Lítið útibú
„Þetta er eins og lítið útibú á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Elías um Sparisjóð Bolungarvíkur til að ítreka smæð hans.
Til samanburðar má nefna að Birna Einarsdóttir, forstjóri Nýja Glitnis banka, og Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri Kaupþings, eru með 1,75 milljón á mánuði eða um 30 prósent hærri laun en Ásgeir.
Ólafur Elísson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Vestmannaeyja, var hins vegar með 975 þúsund krónur á mánuði á síðasta ári fyrir störf sín í sparisjóðnum og Guðmundur E. Lárusson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðfjarðar, var með 783 þúsund krónur í laun á síðasta ári.

Ekki sáttur
Þegar DV náði tali af Ásgeiri sagði hann að þegar hefðu komið fram hugmyndir um að lækka launakostnað. „Fyrir áramót verður tekin ákvörðun um lækkun en það hefur ekki verið ákveðið hversu mikil hún verður,“ segir Ásgeir
Hann er þó ekki ánægður með tilvonandi launalækkun. „Ég er ekkert sáttur við það. Ég held að það sé enginn sáttur við að taka á sig launalækkun en maður verður að taka því sem samið er við mann um,“ segir hann.
Aðspurður hvort ákvörðun um lækkun launa hjá sparisjóðnum komi til að frumkvæði starfsmanna eða utanaðkomandi aðila segir Ásgeir: „Það er hvort tveggja.“ Hann sættist þó á að launalækkun hjá hálaunafólki sé eðlileg krafa í því efnahagsástandi sem nú ríkir.
Elías Kristjánsson vill hins vegar launalækkanir þeirra hæst launuðu hjá Sparisjóði Bolungarvíkur ekki seinna en strax. „Það munar um hvern mánuð hjá þetta lítill stofnun sem menn eru á ofurlaunum,“ segir hann.

Óljós vinnutími
Elías gagnrýnir einnig laun Finnboga Jakobssonar, formanns stjórnar Sparisjóðs Bolungarvíkur, sem fékk 1,9 milljón fyrir stjórnarsetuna á liðnu ári eða 158 þúsund krónur á mánuði. Elías veltir einnig fyrir sér hversu mikill tími fari í starfið og er til efs um að það séu margar klukkustundir mánaðarlega.
DV hafði samband við Finnboga, spurði í hverju starf hans sem formaður stjórnarinnar felist og hversu mikill tími fari í það. Finnbogi var stuttorður: „Ég nenni ekki að ræða það við þig. Ég sé ekki ástæðu til þess.“
Formaður sparisjóðsstjórnar í Vestmannaeyjum, Þór Í. Vilhjálmsson, var með 107 þúsund krónur á mánuði fyrir sitt starf og Ari Teitsson, stjórnarformaður á Norðfirði, var með 48 þúsund.

Ferðast á vegum sjóðsins
Auk þess að stýra Sparisjóði Bolungarvíkur situr Ásgeir Sólbergsson fyrir hönd hans í stjórn Sparisjóðabanka Íslands. Aðspurður segist hann einnig þiggja laun fyrir stjórnarsetu þar. Höfuðstöðvar Sparisjóðabankans eru í Reykjavík og þarf Ásgeir því reglulega að ferðast á milli landshluta. „Ég er að vinna fyrir Sparisjóð Bolungarvíkur sem hluthafi og því er það sparisjóðurinn sem borgar þann kostnað,“ segir hann um hver greiðir ferðakostnaðinn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.