ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Séra Gunnar sýknaður

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:33 › 2. desember 2008
Héraðsdómur Suðurlands sýknaði séra Gunnar af ákærum

Héraðsdómur Suðurlands sýknaði séra Gunnar af ákærum

Séra Gunnar Björnsson var sýknaður í héraðsdómi Suðurlands í dag en hann var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Stúlkurnar voru á unglingsaldri þegar meint brot áttu að eiga sér stað og jafnframt voru þær sóknarbörn hans.

Séra Gunnar var ákærður fyrir kynferðislega áreitni og brot á blygðunarsemi. Dómurinn taldi að orð stæði á móti orði og vitnisburður stúlknanna sem og Gunnars væru trúverðugur og því ekki hægt að sanna að brot hefðu verið framin.

Önnur stúlkan fór fram á tvær milljónir króna í skaðabætur og hin sex hundruð þúsund krónur. Bótakröfunum var vísað frá dómi og greiðist allur sakarkostnaður, 1,4 milljónir króna úr ríkissjóði.

Séra Gunnar sagði við DV í lok apríl að ásakanir stúlknanna væri einn stór misskilningur, að hann hefði aðeins sýnt stúlkunum hlýju en ekki áreitt þær á nokkurn hátt. Þetta staðfesti dómari en hafi látið orðin: „Gefðu mér nú kraft A mín,“ falla er hann faðmaði stúlkuna, hann hafi einungis ekki verið alveg hress. Í skýrslu sagði stúlkan að Gunnar hafi látið þau orð falla að straumarnir streymdu úr líkama hans við það að faðma hana.

Í ákæru segir: „Er að þessu leyti ekki við annað að styðjast en trúverðugan framburð stúlkunnar og þá frásögn móður hennar, af því hvað stúlkan sagði þegar hún kom út í bíl, að ákærði hefði spurt stúlkuna hvort hún fyndi ekki straumana á milli þeirra. Að þessu athuguðu þykir, gegn neitun ákærða frá upphafi, og þar sem framburður hans þykir í sjálfu sér einnig trúverðugur, ekki komin fram sönnun um að hann hafi þá jafnframt látið þau orð falla að straumarnir streymdu úr líkama hans við það að faðma hana."

Sigurður Þ. Jónsson, þáverandi lögmaður séra Gunnars, sagði í samtali við DV í maí að umbjóðandi sinn væri algjörlega saklaus. „Þetta er nú bara það sem sums staðar hefðu verið talin afar eðlileg samskipti. Þannig sé ég þetta eftir að hafa skoðað málið vandlega,“ sagði Sigurður í maí síðastliðnum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.