Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvítugan karlmann til greiðslu 300 þúsund króna fyrir umferðar-, fíkniefna- og lögreglulagabrot.
Maðurinn var stöðvaður að kvöldi laugardagsins 8. desember 2007. Hann var ákærður fyrir að vera undir áhrifum áfengis og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, óhæfur um að stjórna henni örugglega um Arngrímsgötu í Reykjavík og um bifreiðastæði við Hótel Sögu. Þá var hann ákærður fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu er hún sinnti störfum sínum á vettvangi og reynt að frelsa annan mann úr haldi lögreglu og með því að hafa umrætt sinn haft í vörslum sínum 1 stk. töflu af fíkniefninu MDMA, sem lögregla fann við leit á manninum.
Maðurinn neitaði sök. Dómara þótti hinsvegar sannað að maðurinn hafi framið framangreind brot. Auk þess að vera gert að greiða 300 þúsund króna sekt var maðurinn sviptur ökuleyfi í tvö ár og þrjá mánuði.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna