ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Range Rover-brúðkaup í skugga gjaldþrots

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:45 › 2. desember 2008
Bergljót skartar sínu fegursta í Range Rover.

Bergljót skartar sínu fegursta í Range Rover. Róbert Reynisson

Magnús Stephensen getur brosað í gegnum tárin, eftir að fyrirtækið XL Leisure Group fór í þrot, en hann var þar aðstoðarforstjóri. Magnús gekk nefnilega í það heilaga á dögunum með flugfreyjunni Bergljótu Þorsteinsdóttur.

Séð & heyrt greinir frá brúðkaupi Magnúsar og Bergljótar í nýjasta tölublaði sínu. Bergljót hefur starfað sem flugfreyja og menntaður ljósmyndari. Sjálfur sér Magnús tækifæri eftir gjaldþrotið mikla, sem leiddi til atvinnumissis sautján hundruð manns. Hann ætlar að eyða meiri tíma með konu sinni og börnum.

Nánar er fjallað um brúðkaupið og hjónin í Séð & heyrt, en þau komu akandi í glæsilegum svörtum Range Rover í brúðkaupið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.