Auðkýfingurinn Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi eigandi Landsbankans, ætlar að vera heima á Íslandi um jólin. Hann ljóstrar upp í samtali við Séð & heyrt óskalista sínum fyrir jólin, sem er sérstaklega einfaldur og hófsamur.
Björgólfur er ekki kröfuharður, í það minnsta þegar kemur að kostnaði við jólagjafir, enda hefur hann munað fjárhagslegan fífil sinn fegurri. "Ég vil bara bækuir, það eru alltaf klassískar gjafir," segir Björgólfur. "Það verður ekki erfitt að finna athyglisverða bók í dag."
Björgólfur var sjálfur einn af aðaleigendum Eddu útgáfu. Hann hlaut nokkrar ákúrur fyrir að láta farga upplagi af bók Guðmundar Magnússonar um Thorsara-ættina, en þar var fjallað um ástarsamband eiginkonu hans.
Um þessar mundir vinnur Björgólfur að því að fara í gegnum Bókatíðindin og merkja við þær bækur sem hann vill gjarnan fá frá ástvinum sínum. Spurður út í bókina um forseta Íslands segist hann ekki hafa "séð þessa bók um forsetann".
Jólunum mun Björgólfur verja heima á Íslandi, með hefðbundnu lagi. Hann segir það ekki koma til greina að fara til útlanda.
Nánar er rætt við Björgólf í Séð & heyrt, og þar segir hann meðal annars skoðun sína á kreppunni og mótmælunum, en honum þykja þau vera "hið besta mál".





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar