Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Yfirvöld í Norður-Kóreu sendu í gær út nýjar upptökur af einræðisherra landsins, Kim Jong-il. Á upptökunum, sem sýndar voru í fjölda ríkisrekinna fjölmiðla, mátti sjá einræðisherrann sprækan og heilbrigðið uppmálað, þar sem hann skoðar eina sveit flughers landsins.
Síðan Kim Jong-il var fjarverandi hersýningu í september hefur orðrómi um hrakandi heilsufar hans vaxið fiskur um hrygg, og spurningar um hver héldi um valdatauma Norður-Kóreu vaknað.
Útsendingu ríkisfjölmiðlanna fylgdu ekki upplýsingar um nákvæma dagsetningu upptökunnar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu