Réttarhöldum vegna máls frá 2006 er rétt nýlokið í Bandaríkjunum. Sakborningur var kona sem ákærð var fyrir að hafa spunnið upp persónu á MySpace með það fyrir augum að níðast á þrettán ára stúlku, sem var nágranni konunnar. Stúlkan framdi sjálfsmorð í kjölfarið.
Sakborningurinn, Lori Drew, fjörutíu og níu ára, var sýknuð af alvarlegustu ákærunni, sem var að hafa í heimildarleysi nýtt sér tölvu með það fyrir augum að skaða sálarlíf annarrar manneskju. Drew var hins vegar sakfelld fyrir þrjá lítilvæga glæpi sem sneru að því að nýtt sér tölvu í heimildarleysi. Hún á yfir höfði sér allt að eins árs fangelsi og 100.000 bandaríkjadala sekt fyrir hvert brot, samtals 300.000 dali sem samsvara um fjörutíu og einni milljón íslenskra króna.
Evans var uppspuni einn
Sem fyrr segir má rekja forsögu málsins til ársins 2006 og er það sennilega hið fyrsta þar sem ákært er fyrir netþjösnaskap í Bandaríkjunum. Í miðju málsins var Megan Meier sem hengdi sig á heimili sínu í Dardenne Prairie, úthverfi St Louis. Megan ákvað að binda enda á eigið líf eftir að hún fékk rafrænan póst frá dreng, Josh Evans, sem hún hafði vingast við á netinu.
En Evans var uppspuni einn, skálduð persóna sem Lori Drew, Sara dóttir Lori, og Ashley Grills sem var starfsmaður Lori.
Orðsendingin sem hratt atburðarásinni af stað var frá Megan til Grills. Í henni viðraði Megan þá skoðun sína að Sara væri ljót og lesbísk í þokkabót.
Þessi skoðun Megan barst Lori til eyrna og hún reiddist Megan fyrir að hafa „borið út róg“ um dóttur hennar, og varð umhugað að gera Megan „berskjaldaða“.
Hugmynd að hefnd fæðist
Lori fékk Söru dóttur sína, sem einnig var bekkjarfélagi Megan, og Ashley Grills til skrafs og ráðagerða og í sameiningu upphugsuðu þær leið til að niðurlægja Megan, kenna henni lexíuna og komast í leiðinni að því hvað hún hefði að segja um fólk.
Þeim datt í hug „Josh Evans“, sextán ára dreng sem væri nýfluttur í hverfið. Til að fullkomna blekkinguna stofnuðu þær MySpace-síðu í nafni hins skáldaða drengs og settu meira að segja inn mynd af „Josh“ með úfið hár og ber að ofan.
Megan Meier var ung og áhrifagjörn stúlka og glímdi við þunglyndi og þurfti ekki meira þegar „Josh“ sýndi henni áhuga og festist í blekkingarvef mæðgnanna og vinkonu þeirra.
Óknyttir breytast í illkvittni
Megan og „Josh“ hófu að skiptast á orðsendingum, og hún varð sem leiksoppur í höndum Lori Drew og stúlknanna. Eitt sinn, að sögn Grills, stakk Lori upp á því að þær kæmu á stefnumóti Megan og „Josh“ í nálægri verslunarmiðstöð. Síðn myndu þær birtast óvænt og gera gys að Megan.
Áður en langt um leið tóku óknyttirnir á sig dekkri, illkvittnari mynd. Kornið sem fyllti mælinn hjá Megan var orðsending sem Ashley sendi í nafni „Josh“ 12. október 2006. Í henni var Megan sagt að „heimurinn yrði betri staður án hennar“ og hún var hvött til „að halda áfram að lífa sínu [ömurlega] lífi“.
Svar Megan við orðsendingunni dró dám af skilaboðunum: „Þú ert drengur af því tagi sem fær stúlkur til að fremja sjálfsvíg.“ Skömmu síðar hengdi Megan sig.
Tók ekki í gikkinn
Málflutningur ákæruvaldsins byggðist á því að Lori Drew hefði verið heilinn á bak við blekkinguna og sagði að henni hefði verið fullkunnugt um sálarástand Megan, en engu að síður viðhaldið blekkingarleiknum. „Hann breyttist úr einföldum hrekk í þann ásetning að ánetja hana [Megan] þessum unga manni svo hún yrði eyðilögð þegar hún kæmist að því að hann væri ekki til,“ sagði Mark Krause, sækjandi í málinu.
Krause staðhæfði að Lori hefði stært sig af athæfinu og hefði ítrekað fjölyrt um sinn þátt í því, jafnvel eftir dauða Megan. Hann vitnaði í vitnisburð Dawn Chu hárgreiðslukonu sem sagði fyrir dómi að Lori hefði komið á hárgreiðslustofuna sama dag og líkvaka Megan fór fram. Chu var hissa á að Lori hygðist mæta í athöfnina, en Lori sagði: „Það er ekki eins og ég hafi tekið í gikkinn.“
Ekki morðmál
Thomas O'Brien, einn sækjenda, fór að reyna að sýna kviðdómendum fram á skeytingarleysi Loru Drew gagnvart Megan. „Þetta er „Josh Evans“ þarna, gott fólk. Lori Drew tók þá ákvörðun að niðurlægja barn. Eina leiðin sem henni var fær til þess var að nota tölvu,“ sagði O'Brien í lokaræðu sinni.
Verjandi Lori sagði að ef kviðdómendur hefðu ekki heyrt ákæruatriðin gætu þeir freistast til að halda að um morðmál væri að ræða. „Og þetta er ekki morðmál, Þetta, dömur mínar og herrar, er tölvumál og það er það sem þið þurfið að leggja til grundvallar,“ sagði verjandinn.
Lori Drew var ákærð á grundvelli laga sem lúta að tölvunotkun og svindli. Þeim lögum er allajafna beitt í málum sem varða hakkara og stuld á vörumerkjum. Ákæruvaldið tók þá ákvörðun að ákæra Lori á þeim grundvelli að hún hefði brotið skilmála MySpace, sem banna notkun falskra nafna, ofsóknir í garð annarra og að leita persónulegra upplýsinga frá ólögráða einstaklingum.
kolbeinn@dv.is





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 


Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu