ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Mótmæla í París

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:08 › 2. desember 2008
Tómas Ingi Olrich hlustar hér á mótmælendur flytja ræður í París

Tómas Ingi Olrich hlustar hér á mótmælendur flytja ræður í París

„Við vorum í kringum þrjátíu manns, mest Íslendingar,“ segir Kristín Jónsdóttir, leiðsögumaður og þýðandi sem búsett er í Frakklandi. Hún ásamt hópi Íslendinga mótmæltu fyrir framan Sendiráð Íslands í Frakklandi í gær. Hún segir að Tómas Ingi Olrich, sendiherra, hafi tekið vel á móti þeim. „Hann bauð okkur velkomin og hlustaði á ræðurnar tvær. Hann sagðist ætla að koma þeim á framfæri í gegnum eðlilegar boðleiðir Utanríkisráðuneytisins,“ segir Kristín.

Kristín og Laufey Helgadóttir, listfræðingur, héldu ræðu fyrir utan Sendiráðið í gær þar sem lítið sé hægt að mótmæla erlendis. „Við erum búin að vera fylgjast með þessu án þess að geta gert nokkuð, manni finnst maður vera föðurlandssvikari með sínar evrur.“

Hún segir að ótrúlegasta fólk hafi komið á mótmælin. „Það var mikill hiti í fólki og ánægjulegt að sjá fólk úr öllu stigum þjóðfélagsins, þarna voru tvær íslenskar konur sem eru í ríkarihlutanum sem voru líka mjög reiðar.“

Ákall kom í gegnum Facebook-síðuna frá mótmælendum á Íslandi. „Við vorum að svara ákalli sem kom í gegnum Facebook. Ég ætla að vera heima Íslandi yfir jólin og get því mætt á Austurvöll og mótmælt þar,“ segir Kristín að lokum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.