Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Stór hluti Harare, höfuðborgar Simbabve, er án vatns, samkvæmt fréttum þarlendra ríkisfjölmiðla og kólerufaraldur hefur brotist út. Dagblaðið Herald hefur eftir ónafngreindum embættismanni að vatnsskortinn megi rekja til skorts á hreinsiefnum, en þeirra sé að vænta frá Suður-Afríku.
Á fimmta hundrað manns hafa látist úr kóleru og hvatti heilbrigðisráðherra landsins, David Parirenyatwa, fólk til að láta af þeim sið að heilsast með handabandi til að koma í veg fyrir að sjúkdómurinn breiddist út. Yfir ellefu þúsund manns hafa sýkst af kóleru síðan í ágúst.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu