ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Hrímaðir tónleikar Gunnars Gunnarssonar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:00 › 2. desember 2008
  • Gunnar Gunnarsson

    Gunnar Gunnarsson

Gunnar Gunnarsson heldur tvenna píanótónleika í Reykjavík og á Akureyri á morgun og föstudag í tilefni af útkomu geisladisksins Hrím. Þetta eru fyrstu tónleikar hans af þessu tagi þrátt fyrir að um sé að ræða fimmtu píanóplötu hans. Á tónleikunum leikur Tómas R. Einarsson með honum á kontrabassa. Efnið á nýju geislaplötunni er af þjóðlegum toga, þjóðlög og þekkt lög eftir íslensk tónskáld, en platan er í sama anda og Húm sem kom út fyrir þremur árum. Tónleikarnir í Reykjavík verða í Laugarneskirkju á morgun, miðvikudag, klukkan 20.30 og í Ketilhúsinu á Akureyri á föstudaginn klukkan 20.30.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.