Danskir tónleikagestir hóta að grýta Mugison með tómötum og eggjum af því að hann er íslenskur. Þetta sagði blaðamaður danska blaðsins Politiken þegar hann tók viðtal við Mugison vegna fyrirhugaðar tónleikaferðar hans til Danmerkur. Frá þessu er greint á vef Bæjarins besta. Þar kemur einnig fram að Mugison ætli að kalla túrinn „Icesave.“
Mugison hefur að mestu mætt ljúfu fólki á tónleikaferðalagi sínu fyrir utan eina konu í Belgíu sem var alveg brjáluð vegna Icesave. Mugison spilaði í 55 mínútur á tónleikunum en konan heimtaði klukkutíma þar sem hún hafi borgað tólf evrur inn á tónleikana og að íslenska þjóðin hafi hirt af henni enn meiri pening. Mugison brá því á það ráð að draga konuna afsíðis þar sem hann lék fyrir hana tvö lög. Vinkona konunnar tók atvikið upp á myndband og birti á YouTube. Þar er myndbandið hinsvegar vistað þannig að einungis vinir konunnar geta séð það.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð
Harmleikur í Hafnarfirði: Búið að yfirheyra hinn grunaða