Lítill efi virðist nú leika á hvað rak átta ára bandarískan dreng til að bana föður sínum og leigjanda á heimili þeirra 5. nóvember í Arisona í Bandaríkjunum. Samkvæmt fjölda þarlendra fjölmiðla hefur komið í ljós að drengurinn hélt dagbók og í hana skráði hann hvert skipti sem faðir hans lagði á hann hendur. Drengurinn hafði ákveðið að þegar fjöldinn væri kominn upp í eitt þúsund skipti myndi hann drepa föður sinn.
Upplýsingum um þetta hefur verið lekið til bandarískra fjölmiðla og eru margir slegnir vegna þeirra. Drengurinn hefur ekki farið í launkofa með að hann hafi framið morðin, en upphaflega hélt hann því fram að hann hefði fundið lík mannanna þegar hann kom heim úr skólanum þennan örlagaríka dag.
Bæði lögregla og félagsmálayfirvöld hafa fengið að heyra af vörum drengsins frásagnir af erfiðri ævi hans.
Faðir drengsins, Vincent Romero 29 ára, og leigjandinn, Timothy Romans 39 ára, féllu báðir fyrir kúlum úr tuttugu og tveggja kalíbera riffli sem drengurinn hafði lært að skjóta af hjá föður sínum, segir í Daily Telegraph, sem vitnar í prestinn í bænum St. Johns, þar sem þessi hörmulegi atburður átti sér stað.
Afi og amma drengsins velkjast ekki í vafa um að drengurinn hafi framið morðin, og sagði afinn að ef einhver væri fær um að framkvæma eitthvað viðlíka væri það drengurinn. Amman tekur í svipaðan streng: „Ég vissi að þetta myndi enda svona. Þau [foreldrarnir] voru allt of ströng við hann.“
Ekki liggur ljóst fyrir hví leigjandinn var drepinn, en tvær líklegar skýringar hafa verið nefndar; að hann hafi verið staddur þar fyrir tilviljun eða að hann hafi gert tilraun til að koma í veg fyrir verknaðinn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu