ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Auður og Sigurbjörg tilnefndar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:30 › 2. desember 2008
  • Auður A. Ólafsdóttir rithöfundur

    Auður A. Ólafsdóttir rithöfundurMYND Ásgeir M. Einarsson

Auður A. Ólafsdóttir og Sigurbjörg Þrastardóttir hafa verið tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár, Auður fyrir skáldsöguna Afleggjarann og Sigurbjörg fyrir ljóðabókina Blysfarir. Báðar bækurnar komu út í fyrra. Tíu bækur eru tilnefndar til verðlaunanna á hverju ári, tvær frá hverju norrænu ríkjanna. Dómnefndin mun á fundi sínum 3. apríl á næsta ári kveða upp úr um það hver hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2009. Verðlaunaféð nemur 350 þúsund dönskum krónum. Þess má geta að Auður fékk Menningarverðlaun DV í bókmenntum fyrr á árinu fyrir Afleggjarann.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.