„Í aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda felst alvarleg aðför að Ríkisútvarpinu og almannaþjónustuhlutverki þess,“ segir í ályktun fundar Starfsmannafélags RÚV, sem haldinn var í dag. Starfsmenn RÚV harma ennfremur að æðstu stjórnendur fyrirtækisins hafi ekki séð aðra leið en að segja upp fólki og skerða laun í fjárhagsörðugleikum stofnunarinnar.
Ályktun starfsmanna RÚV er birt í heild hér að neðan:
Ályktun starfsmannafundar í Ríkisútvarpinu 2 desember 2008.
„Sjaldan hefur verið ríkari þörf fyrir sterkt Ríkisútvarp til að standa vörð um lýðræðið í landinu. Starfsfólk ríkisútvarpsins harmar að fjársvelti og vanhugsuð stefna stjórnvalda og Alþingis hafi nú leitt til þess að skera verður niður um fimmtung með tilheyrandi fjöldauppsögnum.
Tekjur Ríkisútvarpsins hafa hins vegar dregist saman og ríkið hefur ekki staðið við þjónusamning. Að auki stendur til að setja hömlur á auglýsingar í Ríkisútvarpinu. Verði hugmyndir um slíkt að veruleika, munu tekjur fyrirtækisins dragast saman um mörg hundruð milljónir með tilheyrandi samdrætti og uppsögnum tuga starfsmanna.
Ríkisútvarpið er opinbert hlutafélag í eigu ríkisins og til skammar að það skuli vera í fararbroddi með fjöldauppsagnir þegar útlit er fyrir mesta atvinnuleysi í áratugi. Hvernig getur það mögulega samræmst hagsmunum almennings eða ríkissjóðs að segja upp ríkisstarfsmönnum, til þess eins að greiða þeim atvinnuleysisbætur? Sparnaðurinn er enginn þegar á heildina er litið, en skaði einstakra starfsmanna og Ríkisútvarpsins í heild er hins vegar gríðarlegur.
Í aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda felst alvarleg aðför að Ríkisútvarpinu og almannaþjónustuhlutverki þess. Réttara væri að almannavaldið stæði vörð um Ríkisútvarpið á erfiðum tímum.
Starfsmenn Ríkisútvarpsins harma að æðstu stjórnendur fyrirtækisins hafi ekki séð aðra leið en að segja upp fólki og skerða laun. Rétt væri að þeir litu í eigin barm og deildu kjörum með þeim sem undir þeim vinna. Ekki er hægt að réttlæta ofurlaun hjá almannaútvarpi í ríkiseigu á meðan fólk er rekið í sparnaðarskyni.
Starfsmenn Ríkisútvarpsins krefjast þess að nýtilkynntar uppsagnir verði dregnar tafarlaust til baka. Þeir hafna allri skerðingu á kjörum og samningsbundnum réttindum, þ.m.t. flatri launalækkun.
Sameiginlega bera Alþingi, ríkisstjórnin og æðstu stjórnendurRíkisútvarpsins fulla ábyrgð á framtíð Ríkisútvarpsins.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð
Harmleikur í Hafnarfirði: Búið að yfirheyra hinn grunaða