„Ég trúi þessu ekki ennþá,“ segir Hjalti „Úrsus“ Árnason afar ósáttur við niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem í dag sýknaði Fréttablaðið í meiðyrðamáli sem hann höfðaði gegn því.
Hjalti segir það nær öruggt að málinu verði áfrýjað. „Við hljótum að fara alla leið með þetta. Sannleikurinn og réttlætið hlýtur að hafa eitthvað vægi í þessu þjóðfélagi,“ segir Hjalti.
Hjalti stefndi Fréttablaðinu fyrir meintan rógburð sem birtist í blaðinu þann 8. október á síðasta ári. Þar var sagt að fyrrverandi formanni Kraftlyftingasambands Íslands hefði verið bolað frá völdum af kraftlyftingamönnum þar sem þeir hafi ekki viljað sækja um aðild að Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands af ótta við reglubundið lyfjaeftirlit. Hjalti var þar nafngreindur sem einn af þeim andstæðingum aðildarinnar. Hann fór fram á að ummælin yrðu dæmd dauð og ómerk, Fréttablaðið birti leiðréttingu í sínu eigin blaði sem og öðrum miðlum auk þess að greiða sér 10 milljónir króna í skaðabætur.
„Þetta var hrein lygi. Við erum með fundargerð sem sannar að það var allt annað sem fór fram á þessum fundi en kom fram í Fréttablaðinu. Fundargerð sem er undirrituð af viðmælanda Fréttablaðsins. Það eru ljúgvitni sem mæta í réttasalinn sem ljúga beint framan í dómarann og við sönnum það. En það skiptir engu máli.“ segir Hjalti.
Hjalti segir mesta höggið vera það að dómurinn hafi ekki séð neina ástæðu til að dæma lygina ómerka. „Lygin á sér talsmenn allstaðar.“





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir