ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.7° 9m/s E

Aðstoðarmaðurinn í fullu starfi hjá banka

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:24 › 19. desember 2008
  • Telma Magnúsdóttir er í fullu starfi hjá Landsbankanum.

    Telma Magnúsdóttir er í fullu starfi hjá Landsbankanum. Mynd: DV

Telma Magnúsdóttir, aðstoðarmaður Jóns Bjarnasonar þingmanns vinstri-grænna, vinnur fullt starf samhliða störfum hjá Jóni. Hún býr í Reykjavík en í lögum um aðstoðarmenn er kveðið á um að þeir hafi aðstöðu í kjördæmunum.

Atli Atlason, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs hjá Landsbankanum, segir að Telma hafi sótt um að fá að sinna öðru starfi þegar hún fékk vinnu áfram í bankanum.

„Ég vil ekki ræða það meðan ég er hér í afgreiðslunni,“ segir Telma Magnúsdóttir við blaðamann sem fór í Landsbankann í gær til að ná tali af henni eftir ítrekaðar tilraunir í gegnum síma og skilaboð. Blaðamanni var meinað að ljósmynda í bankanum en fékk þó að tala við Telmu sem segir að hún reyni að sinna störfum sínum í kjördæminu sem allra best og sé með lögheimili í kjördæminu en búi á höfuðborgarsvæðinu. „Ég leigi hérna í bænum og fer oft í kjördæmið,“ segir Telma og tekur fram að starfið sé kvöld- og helgarvinna.

„Þegar ég réð hana var hún ekki í fullu starfi og bjóst við því að hætta,“ segir Jón Bjarnason, þingmaður vinstri-grænna.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.