ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Vill sameina skóla hvítra og þeldökkra

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:32 › 18. desember 2008
Hill Hall í Savannah State-háskólanum. Samkvæmt hefð er meirihluti nemenda skólans þeldökkur.

Hill Hall í Savannah State-háskólanum. Samkvæmt hefð er meirihluti nemenda skólans þeldökkur.

Öldungadeildarþingmaður fyrir Georgíu-fylki í Bandaríkjunum hefur viðrað þá skoðun sína að vænlegt sé að sameina almenningsháskóla í fylkinu vegna fjárskorts. Tveir skólanna sem um ræðir eru afurð þess tíma þegar aðskilnaðarstefnan var í gildi. Sú hefð hefur skapast síðan aðskilnaðarstefnunni var varpað fyrir róða að í þeim skólum hefur meirihluti nemenda verið þeldökkur, en í tveimur öðrum skólum hefur meirihluti nemenda verið hvítur á húð.

Seth Harp, formaður nefndar sem fer með málefni æðri menntunar í fylkinu sagði að tími væri kominn til að ljúka þessum „ljóta kafla í sögu Georgíu.“ En tillögur hans hafa hlotið misjafnan hljómgrunn og vakið upp andstöðu. Gagnrýnendur tillögunnar segja að við núverandi aðstæður þá sæki einstaklingar nám í skólana sem við aðrar aðstæður hefðu sleppt því. Sérfræðingar telja að þeldökkir nái meiri árangri í háskólaumhverfi þeldökkra og segja að brotthvarf úr skólum sé minna en í meirihluta hvítra stofnana.

Þess utan er það mat margra að skólarnir séu mikilvæg tákn baráttunnar fyrir bograralegum réttindum og að ekki sé vert að flýja söguna.

Skólarnir voru stofnaðir fyrir 1964 þegar andi aðskilnaðar sveif yfir vötnum í Suðurríkjunum, til að gefa Bandaríkjamönnum af afrískum uppruna kost á menntun. Nú eru skólarnir opnir fólki af öllum kynþáttum og í seinni tíð hefur hvítum nemendum fjölgað, að sögn sérfræðinga.

Ef tillaga Seths Harp gengur eftir myndi Savannah State-háskólinn, sem í huga fólks er skóli þeldökkra og er með 4.300 nemendur, sameinast Armstrong Atlantic State-háskólanum, en þar er meirihluti nemenda hvítur. Auk þess myndi Albany State-háskólinn með sína 4.100 nemendur sameinast Darton-háskólanum, sem líkt og Armstrong Atlantic State-háskólinn er að mestu leyti sóttur af hvítum nemendum.

Hvers lags sameining almenningsháskóla er háð samþykki háskólanefndar Georgíu-fylkis, og að sögn talsmanns nefndarinnar hefur hún ekki í bígerð að íhuga hugmynd Seths Harp, og sagði hana fara í bága við það markmið að fjölga háskólamenntuðu fólki í fylkinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.