„Við erum í mörgum þáttaröðum vestanhafs,“ segir Jón Ólafsson athafnamaður en vatnið hans Icelandic Glacial kemur víða fyrir í nýjustu þáttaröðinni af Entourage. Persónurnar í þáttunum drekka vatnið í gríð og erg og er auglýsingin hin mesta. Entourage er ein vinsælasta sjónvarpsþáttaröð vestanhafs.
Bandaríski morgunþátturinn Today Show fjallaði einnig ítarlega um Icelandic Glacial á dögunum, en talið er að um fimm milljónir manna horfi á þáttinn daglega.
Jón segir þessa kynningaraðferð mjög áhrifaríka. „Við komum víða við, bæði í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum,“ segir Jón, en vatninu bregður einnig fyrir í rómantísku gamanmyndinni What Happens in Vegas þar sem stórleikkonan Cameron Diaz sést drekka vatnið í senum í myndinni.
„Þáttaraðir og kvikmyndir eru trendsetterar og leikarar gefa tóninn um hvað á að nota og gera,“ segir Jón og bætir við: „Nú kemur þrjátíu ára reynsla mín í kvikmyndum og tónlist sér vel. Það eru gamlir vinir mínir þarna vestanhafs sem eru þarna á ferðinni.“





Radcliffe fúll út í Óskarinn
Var fullur á meðan hann lék Harry Potter
Madonna mætti með hersveit
Heidi þakklát fyrir stuðninginn
Scarlett og nýi kærastinn