Stjarna verður að skúrki

Stein Bagger á skrifstofu sinni áður en veröld hans hrundi.

Stein Bagger á skrifstofu sinni áður en veröld hans hrundi. Myndir: AFP.

Fimmtudagur 18. desember 2008 kl 19:20

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Um fátt er meira fjallað í dönskum fjölmiðlum en Stein Bagger, sem féll af stalli viðskiptamanns ársins í Danmörku með dramatískum hætti fyrir skömmu. Bagger, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins IT Factory sem nú er gjaldþrota, er af dönskum og norskum uppruna og var útnefndur viðskiptamaður ársins í Danmörku í ár, af ráðgjafarfyrirtækinu Ernst & Young.

Fyrirtæki hans IT Factory var útnefnt fyrirtæki ársins, í upplýsingatækni, tvö ár í röð af tímaritinu Computerworld.

En nú er Snorrabúð stekkur og orðspor Baggers hefur beðið mikinn hnekki, enda er hann talinn maðurinn á bak við viðamesta fjársvikamál sem upp hefur komið í Danmörku.
Stein Bagger viðurkenndi sekt sína fyrir rétti í Lyngby í Danmörku vegna skjalafals og fjárdráttar, en sagðist ekki hafa á hreinu um hve háa upphæð væri að ræða. Talið er að þar sé um að ræða tuttugu milljarða íslenskra króna.

Ekki í fyrsta sinn
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Stein Bagger bendlast við mál af þessum toga. Árið 2003 kærði Amagerbankinn Bagger til lögreglunnar vegna skjalafals, og fjórtán mánuðum áður en Bagger hvarf í lok nóvember kærði skatturinn hann til lögreglunnar á Norður-Sjálandi vegna virðisaukaskatts- og reikningasvika upp á um tvöhundruð milljónir íslenskra króna.
Einnig hafa komið upp úr kafinu tengsl Baggers við liðsmenn Hells Angels, Vítisengla. Þann 24. nóvember sætti Alan Vestergaard, einn viðskiptafélaga Baggers, barsmíðum tveggja manna fyrir utan heimili sitt. Samkvæmt frásögn Vítisengilsins Brians Sandberg hitti hann Bagger daginn eftir og sagði að samstarfi þeirra væri lokið ef sá fyrrnefndi væri flæktur í eitthvað glæpsamlegt.

Ferð til Dúbaí og viðurkenning
Mánudaginn 26. nóvember fer Stein Bagger ásamt eiginkonu sinni, Anette Uttenthal, og nokkrum vinum í skemmti- og viðskiptaferð til Dúbaí. Samkvæmt ferðaáætlun var ætlunin að snúa heim næsta sunnudag.
Á þriðjudeginum átti Bagger að taka þátt í ráðstefnu sem átti að fara fram með myndsendingu, að sögn danska fjármálablaðsins Børsen með Alan Vestergaard, viðskiptafélaga Baggers, og fölskum Erik Ove, upplýsingafulltrúa IT Factory. Ráðstefnan gekk ekki sem skyldi og um kvöldið hringir Alan Vestergaard í hinn rétta Erik Ove.
Stein Bagger er hins vegar ekki lengur í Dúbaí. Á meðan á þessu gekk tók IT Factory á móti viðurkenningu Ernst & Young sem fyrirtæki ársins. Tæpri viku síðar var fyrirtækið svipt titlinum.

Horfinn Bagger
Aðfaranótt föstudagsins 28. nóvember hringdi Anette, eiginkona Baggers, í Asger Jensby, stjórnarformann og meðeiganda Baggers í IT Factory, og tilkynnti honum að Bagger væri horfinn.
Í bítið á föstudagsmorgni fór Asger Jensby í gegnum bækur fyrirtækisins í leit að vísbendingum um hvar Bagger gæti verið að finna, en árangurslaust. Í kjölfarið fékk lögreglan heimild til að hlera síma Baggers, auk þess sem lögreglan á Norður-Sjálandi rannsakaði líkamsárásina á Alan Vestergaard.
Eiginkona Baggers snéri ein síns liðs heim til Danmerkur að kvöldi föstudags.

Leyniskrifstofa Baggers
Asger Jensby varði laugardeginum í að fara gaumgæfilega í gegnum bókhald IT Factory og að kvöldi dags fékk hann upplýsingar um leyniskrifstofu sem Stein Bagger hafði í Schæffergården við Gentofte, þar sem IT Factory var einnig skráð til húsa.
Að morgni sunnudags fékk Jensby aðgang að leyniskrifstofunni og mynd fór að koma á fjársvikamál sem átti eftir að verða hið stærsta í danskri sögu.
Eiginkona Baggers tilkynnti lögreglunni hvarf eiginmanns síns á laugardeginum og þar sem hann hafði horfið á erlendri grundu var lýst eftir honum af alþjóðalögreglunni Interpol.

Gjaldþrot og fjársvikamaður á flótta
Fljótlega kom í ljós að IT Factory var gjaldþrota og Asger Jensby kærði Stein Bagger, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, til lögreglunnar fyrir fjársvik. En ekki voru öll kurl komin til grafar, því Vítisengill að nafni Jønke opinberaði að Stein Bagger hefði ráðið einn úr röðum Vítisengla í stöðu öryggisráðgjafa.
Viðskiptaskólinn í Edinborg í Skotlandi sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis að Stein Bagger hafi ekki meistaragráðu frá skólanum. Hann stundaði reyndar nám í borginni en lauk aldrei námi.

Samstarfsmönnum hótað
Síðustu teikn um tilvist Baggers voru frá þriðjudeginum 25. nóvember, en þá hafði hann í tvígang tekið fé út með greiðslukorti sínu á flugvellinum í Abu Dhabi. Síðan þá hafði enginn hvorki séð hann né heyrt, og engu líkara en jörðin hefði gleypt hann.
Starfsmenn IT Factory vörðust allra frétta af högum fyrirtækisins og viðskiptum þess. Blaðið Børsen hafði eftir ónafngreindum heimildarmanni að samstarfsmenn Baggers í IT Factory hefðu annaðhvort sætt þrýstingi eða verið keyptir til að þegja. Einnig rifjaði Børsen upp að Bagger hefði verið kærður fyrir skjalafals árið 2003.

Heim frá Bandaríkjunum
Stein Bagger var ákærður fjarverandi fyrir skjalafals og umsvifamikil fjársvik fyrir rétti í Lyngby. Ákæran hljóðaði upp á tuttugu milljarða króna fjársvik.
Síðar kom á daginn að Stein Bagger hafði lagt leið sína til Bandaríkjanna, með aðstoð sænsks vinar síns, Mikaels Ljungman. Þann 6. desember gaf hann sig fram við lögregluna í Los Angeles, sem skömmu síðar hafði samband við dönsk lögregluyfirvöld.
Stein Bagger kom heim til Danmerkur í gær, og má teljast nokkuð öruggt að verjandi hans, Jesper Madsen, hafi verið spenntur. Hann hefur, vegna fjarverunnar og óvissunnar, nánast þurft að fylgjast með málum af hliðarlínunni.

Tvær ákærur
Að sögn Jespers Madsen stendur Stein Bagger frammi fyrir tveimur ákærum. Önnur ákæran hljóðar upp á fölsun leigusamninga upp á um milljarð króna gagnvart sænska SEB-bankanum. Fölsunin var fullkomnuð með falsaðri undirskrift Asgers Jensby, stjórnarformanns IT Factory. Fyrir vikið tapaði bankinn um milljarði króna.
Hin ákæran hljóðar upp á svik og skjalafölsun Steins Bagger, sem framkvæmdastjóra IT Factory árin 2007 og 2008. Þau svik snertu danskar og alþjóðlegar fjármálastofnanir og tengdust fölsuðum lána- og leigusamningum. Undirskrift Asgers Jensby var einnig fölsuð í þeim viðskiptum. Upphæðin hljóðar upp á um tuttugu milljarða króna, sem umræddir bankar töpuðu.
Jesper Madsen sagðist ekki geta útilokað að ákæruatriðum á hendur Bagger fjölgaði, þó hann hefði ekki vitneskju um slíkt.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 22:12

Bílvelta í Hrútafirði: Þrjár stúlkur lítið meiddar

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 19:21

Nafn hinnar látnu

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 13:00

Mogginn enn á framfæri almennings

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 12:50

21 hross dautt á Kjalarnesi

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 11:35

Hóta að senda hermenn til Gaza

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:35

Vorum skilin ein eftir í miðju hafi

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:20

Ágætis færð um landið

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:12

Kastaðist út úr bíl í Öxarfirði

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:04

Kona um sextugt lést í umferðarslysi

Laugardagur 27. desember 2008 kl 20:21

Börn með krabbamein fengu tvær og hálfa milljón

Laugardagur 27. desember 2008 kl 20:07

Timburmenn: Fórnarkostnaður eða fáviska

Laugardagur 27. desember 2008 kl 16:36

Bættu bólfélagann

Laugardagur 27. desember 2008 kl 13:10

Hægt að sprengja útrásarvíkingana

Laugardagur 27. desember 2008 kl 12:24

Geir með 935 þúsund krónur á mánuði

Laugardagur 27. desember 2008 kl 11:23

Morðinginn vissi ekki af barni konu sinnar

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:55

120 látnir á Gaza

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:20

Bláfjöll lokuð en opið á Akureyri

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:09

Jónas: Ólafur Ragnar útrásarforstjóri

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:04

Varað við hálku

Laugardagur 27. desember 2008 kl 09:40

Róleg nótt - líkamsárás á Húsavík