Lúðvík Bergvinsson, alþingismaður Samfylkingarinnar, vill ekki upplýsa hvaða eignir fasteignafélag hans, Miðklettur á, né heldur um helstu verkefni félagsins á síðustu árum.
Samhliða því að vera þingflokksformaður Samfylkingarinnar er Lúðvík meðal annars stjórnarformaður í Miðkletti fasteignafélagi ehf, sem hefur verið nokkuð umsvifamikið í fasteignaviðskiptum á síðustu árum. „Ég ætla ekkert að vera að upplýsa um eitthvað þess háttar.“ Aðspurður um hvers vegna hann vilji ekki greina frá umsvifum fasteignafélagsins, svarar hann: „Mér finnst það svo sem ekkert eiga erindi í neina umræðu,“ segir hann.
Lúðvík segir ekkert til í þeim kenningum sem gengið hafa manna á milli í tölvupóstum, á bloggsíðum og á vefmiðlinum Eyjunni í þessari viku, að hann hafi fengið háar upphæðir afskrifaðar hjá Landsbanka Íslands í kjölfar bankahrunsins. „Það er ekki neitt til í þessu. Ég er hvorki á vildarkjörum né með neinar afskriftir,“ svarar Lúðvík þegar hann er spurður út í hvort fimm milljarða króna lán fyrirtækja sem tengjast honum hafi verið afskrifuð hjá bankanum.
Hann segir það rógburð sem á sér enga stoð í tilverunni að hann hafi fengið einhverja sérmeðferð hjá bankaum eins og fullyrt hefur verið. „Mér finnst það hálfdapurlegt hvernig umræðan er að þróast og það er vont þegar maður þarf að svara fyrir slíkt,“ segir hann.
valgeir@dv.is




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision