Sakar meirihlutann um valdníðslu

Ólafur er ósáttur með vinnubrögð meirihlutans og fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna.

Ólafur er ósáttur með vinnubrögð meirihlutans og fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna. Mynd: DV.

Fimmtudagur 18. desember 2008 kl 14:25

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, gagnrýnir vinnubrögð meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur harðlega í bókun sem hann lagði fyrir á fundi borgarráðs í morgun. Ólafur gagnrýnir einnig fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna um að taka þátt í þeirri valdníðslu, sem í því felst að sniðganga borgarráð og borgarráðsfulltrúa F-listans, í allri undirbúningsvinnu að fjárhagsáætlun borgarinnar.

Ólafur sendi fjölmiðlum bókunina sem er svohljóðandi:

Undirritaður mótmælir harðlega þeim ólýðræðislegu og óvönduðu vinnubrögðum sem hafa verið viðhöfð við undirbúning fjárhagsáætlunar. Borgarráð er framkvæmdaráð Reykjavíkurborgar og á sem slíkt að undirbúa fjárhagsáætlun enda hefur verið svo um langt árabil. Þessi hefð hefur nú verið rofin og meirihlutafulltrúarnir í borgarstjórn hafa, með vitund og vilja borgarfulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna, hunsað aðkomu borgarráðs og þar með aðkomu allra framboða í borginni að þessari þýðingarmiklu vinnu. Sú staðreynd að undirrituðum sem fyrrverandi borgarstjóra hefur verið haldið utan við undirbúning fjárhagsáætlunar er skaðleg fyrir borgarbúa. Undirritaður vann ötullega að fjámálastjórn borgarinnar í borgarstjóratíð sinni. Eini borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem gaf sér tíma til að vinna með undirrituðum að fjármálum borgarinnar var þáverandi formaður borgarráðs Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Aðrir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sinntu þeirri vinnu einfaldlega ekki. Borgarfulltrúar Framsóknarflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna voru á þeim tíma uppteknir við pólitískan skæruhernað gegn meirihluta F-lista og Sjálfstæðisflokks á vettvangi borgarráðs og borgarstjórnar. Svo virðist sem borgarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna hafi lagt niður rófuna við síðustu meirihlutaskipti og ákveðið að vinna alfarið með nýjum meirihluta gegn því að fá dúsur í starfshópum hjá meirihlutanum. Raunar mætti orða þetta þannig að flestir borgarfulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna vilji “alcoa” með meirihlutanum.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 22:12

Bílvelta í Hrútafirði: Þrjár stúlkur lítið meiddar

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 19:21

Nafn hinnar látnu

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 13:00

Mogginn enn á framfæri almennings

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 12:50

21 hross dautt á Kjalarnesi

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 11:35

Hóta að senda hermenn til Gaza

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:35

Vorum skilin ein eftir í miðju hafi

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:20

Ágætis færð um landið

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:12

Kastaðist út úr bíl í Öxarfirði

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:04

Kona um sextugt lést í umferðarslysi

Laugardagur 27. desember 2008 kl 20:21

Börn með krabbamein fengu tvær og hálfa milljón

Laugardagur 27. desember 2008 kl 20:07

Timburmenn: Fórnarkostnaður eða fáviska

Laugardagur 27. desember 2008 kl 16:36

Bættu bólfélagann

Laugardagur 27. desember 2008 kl 13:10

Hægt að sprengja útrásarvíkingana

Laugardagur 27. desember 2008 kl 12:24

Geir með 935 þúsund krónur á mánuði

Laugardagur 27. desember 2008 kl 11:23

Morðinginn vissi ekki af barni konu sinnar

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:55

120 látnir á Gaza

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:20

Bláfjöll lokuð en opið á Akureyri

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:09

Jónas: Ólafur Ragnar útrásarforstjóri

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:04

Varað við hálku

Laugardagur 27. desember 2008 kl 09:40

Róleg nótt - líkamsárás á Húsavík