Reykvíkingar henda minna af rusli en áður

Fimmtudagur 18. desember 2008 kl 15:03

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Sorpmagn heimilanna var 18 prósent minna í nóvember 2008 borið saman við nóvember 2007 samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Viðbúið er þó að vinnan þyngist hjá sorphirðufólki í desember þar sem sorpmagn er ævinlega mikið þar sem margt berst inn um lúguna.

„Mikilvægt að flokka sorp til endurvinnslu um jólahátíðirnar því mikið leggst til,“ segir Sigríður Ólafsdóttir rekstrarstjóri Sorphirðu Reykjavíkur. „Við munum vinna fram að hádegi á aðfangadag. Og byrjum aftur annan í jólum og stefnum að því að allir fái losun á sorpi á milli hátíða - aðeins veður og færð geta hindrað það,“ segir Sigríður.

Hún segir óhagstætt að fylla tunnurnar með jólapappír og pappakössum. „Þetta rusl lyktar ekki og afar auðvelt er að fara með það á endurvinnslustöðvar.“ Ferð í Sorpu eða í grenndargáma kemur í veg fyrir að sorpílát yfirfyllist eins og stundum vill við henda um jólin. Þá biður Sigríður fólk í tilkynningunni um að moka snjó frá sorpgeymslum og eyða hálku sem liggur að sorpílátum.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 22:12

Bílvelta í Hrútafirði: Þrjár stúlkur lítið meiddar

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 19:21

Nafn hinnar látnu

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 13:00

Mogginn enn á framfæri almennings

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 12:50

21 hross dautt á Kjalarnesi

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 11:35

Hóta að senda hermenn til Gaza

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:35

Vorum skilin ein eftir í miðju hafi

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:20

Ágætis færð um landið

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:12

Kastaðist út úr bíl í Öxarfirði

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:04

Kona um sextugt lést í umferðarslysi

Laugardagur 27. desember 2008 kl 20:21

Börn með krabbamein fengu tvær og hálfa milljón

Laugardagur 27. desember 2008 kl 20:07

Timburmenn: Fórnarkostnaður eða fáviska

Laugardagur 27. desember 2008 kl 16:36

Bættu bólfélagann

Laugardagur 27. desember 2008 kl 13:10

Hægt að sprengja útrásarvíkingana

Laugardagur 27. desember 2008 kl 12:24

Geir með 935 þúsund krónur á mánuði

Laugardagur 27. desember 2008 kl 11:23

Morðinginn vissi ekki af barni konu sinnar

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:55

120 látnir á Gaza

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:20

Bláfjöll lokuð en opið á Akureyri

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:09

Jónas: Ólafur Ragnar útrásarforstjóri

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:04

Varað við hálku

Laugardagur 27. desember 2008 kl 09:40

Róleg nótt - líkamsárás á Húsavík