Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fyrrverandi ritstjóra tímaritsins Hér og nú, til greiðslu 300 þúsund króna sektar, vegna áfengisauglýsingar sem birtist í blaðinu þann sextánda mars árið 2006.
Ritstjórinn fyrrverandi sagði fyrir dómi að hann hafi ekki séð umrædda auglýsingu fyrr en hann var kallaður í skýrslutöku hjá lögreglu. Þeir starfsmenn blaðsins sem séð hafi um að selja auglýsingar í blaðið hafi tekið ákvarðanir um allar auglýsingar í blaðinu.
Var það mat Héraðsdóms að sakfella bæri ritstjórann þar sem ekki liggur fyrir nafngreining á auglýsingunni. Ef ekki sé unnt að bera kennsl á höfundinn skuli aðrir bera ábyrgðina eftir tiltekinni ábyrgðaröð.
Var ritstjóranum fyrrverandi gert að greiða 300 þúsund króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins, en sæta ella fangelsi í 22 daga. Þá var honum gert að greiða laun verjanda síns, 111 þúsund krónur.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning