Laun starfsmanna RÚV koma til með að lækka frá og með áramótum um 6 til 15 prósent. Þetta var starfsmönnum tilkynnt á fundi í morgun. Þetta á þó ekki við um þá starfsmenn sem eru með laun undir 300 þúsund krónum á mánuði.
Starfsmenn sem eru með laun á bilinu frá 300 til 400 þúsund krónur lækka í launum um sex prósent. Þeir sem hafa 400 til 500 þúsund krónur lækka um átta prósent og laun þeirra sem hafa 500 til 600 þúsund krónur um níu prósent. Þá lækka laun þeirra sem eru með 600 til 700 þúsund krónur um tíu prósent og laun yfir 700 þúsund krónum lækka um tólf prósent.
Laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra og þeirra sem sitja í stjórn RÚV ohf. lækka um fimmtán prósent. 45 starfsmönnum var sagt upp um síðustu mánaðarmót en með þessum aðgerðum nær fyrirtækið að spara 150 milljónir króna. Ákvörðunin nú verður endurskoðuð um mitt næsta ár.





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“