ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Jón Ásgeir segist ekki missa svefn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:35 › 18. desember 2008
Jón Ásgeir segist hafa hreina samvisku og sofa vel.

Jón Ásgeir segist hafa hreina samvisku og sofa vel. Mynd: DV

Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs Group, segist ekki skynja reiði gagnvart sér í samfélaginu. Hópur manna veittist að honum þar sem hann var staddur fyrir utan 101 Hótel í gær og kastaði einn úr hópnum meðal annars snjóbolta í hann.

„Nei, ég hef ekki fengið á því að kenna, segir Jón Ásgeir, þegar hann er spurður hvort hann skynji reiði gagnvart sér í samfélaginu. Blaðamaður bendir honum á að bloggari hafi í kjölfar fréttar um snjóboltakastið skrifað að Jón Ásgeir mætti eiga von á einhverju viðlíka aftur.

„Hver veit hvað hver er að segja á blogginu? Ég sef bara mjög vel, hef engar áhyggjur og hreina samvisku. Mér finnst að ef þetta fólk vill taka reiði sína út á öllum og veit ekki einu sinn af hverju það er reitt þá verði það bara að vera þannig,“ segir hann.

Spurður hvort hann hafi getað ímyndað sér að mótmælendur ættu eftir að veitast að honum með þessum hætti heldur Jón Ásgeir áfram að gera lítið úr atvikinu. „Þetta var ekkert alvarlegt. Þetta voru bara einhverjir aðilar sem voru ekki í jafnvægi. Það er ekki eins og þetta hafi verið tugir manns. Þetta voru einhverjir fjórir, fimm aðilar, líklega úr sama hópi og var með skrílslæti í Landsbankanum,“ segir hann. Fyrr um daginn fylltu mótmælendur útibú Landsbankans í Austurstræti, sungu og hrópuðu slagorð.

Nánar er rætt við Jón Ásgeir í DV í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.