Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að senda ekki jólakort með kveðjum ráðherra og starfsfólks ráðuneytisins að þessu sinni en verja þess í stað fjárhæð sambærilegri hefðbundnum jólakortasendingum til velferðarmála. Fjárhæðinni, 250.000 krónum, verður varið til að styrkja Einstök börn, stuðningsfélag barna með sjaldgæfa og alvarlega sjúkdóma.
Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu segir að um leið og Jóhanna tilkynnir um þessa ráðstöfun vill hún nota tækifærið og þakka félagasamtökum, stofnunum og öðrum samstarfsaðilum ráðuneytisins fyrir einstaklega gott samstarf á árinu sem er að líða og óska þeim og landsmönnum öllum farsældar og gleðilegra jóla.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning
Reykjavíkurborg dæmd til að greiða Frjálslyndum 6,7 milljónir