„Það hefur alltaf verið draumurinn minn að vera leikkona,“ segir hin hálf-íslenska Caroline Dahl Jónsdóttir sem leikur í dönsku sjónvarpsþáttunum Sommer sem sýndir eru í Ríkissjónvarpinu en faðir Caroline var Íslendingur.
„Ég heimsæki fjölskylduna mína á Íslandi alltaf tvisvar sinnum á ári. Ég hef oft eytt bæði jólunum og áramótunum á Íslandi en í ár ætla ég að vera í Danmörku.“
Caroline, sem er nítján ára gömul bjó á Íslandi til eins og hálfs árs aldurs en þá flutti hún ásamt móður sinni sem er dönsk til Danmerkur.
„Ég hætti í menntaskólanum því þar var ég ekki að læra neitt sem ég hafði áhuga á. Mig langar að verða leikkona og svo kom tækifærið skyndilega og ég er rosalega ánægð með það,“ segir hún en amma Caroline, Lisbeth Dahl fer með eitt aðalhlutverkið í Sommer.
„Amma var komin með hlutverk í þáttunum og heyrði framleiðendurna vera að tala um að það vantaði einhverja stelpu í mitt hlutverk. Hún benti þeim á mig og þeir samþykktu að fá mig í prufu. Mér til mikillar gleði var ég svo valin í hlutverkið úr stórum hópi af stúlkum sem sóttu um.“
Caroline fer með hlutverk Lotte í þáttunum.
„Þættirnir snúast aðallega um eina aðalfjölskylda og unga stúlkan í fjölskyldunni er þreytt á að búa í svona leiðinlegri borg. Hún verður besta vinkona mín og ég bjarga henni úr ýmsum vandræðum.“
Caroline segir margar dyr hafa opnast eftir að hún landaði hlutverkinu í Sommer. „Ég er nú þegar búin að leika aukahlutverk í kvikmynd sem kemur í kvikmyndahús í Danmörku næsta sumar. Svo vonast ég bara eftir því að fá fleiri hlutverk á næstunni og jafnvel að skella mér svo í leiklistarnám.“
krista@dv.is




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum
Beckham með Harry prins á djamminu
Radcliffe fúll út í Óskarinn
Var fullur á meðan hann lék Harry Potter