Hvað kosta jólin?

Hangikjöt fyrir fimm manna fjölskyldu kostar um þrjú þúsund krónur.

Hangikjöt fyrir fimm manna fjölskyldu kostar um þrjú þúsund krónur.

Fimmtudagur 18. desember 2008 kl 16:03

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Hefðbundið jólahald fimm manna fjölskyldu getur kostað kostar í mörgum tilvikum tugir þúsunda króna en vel er hægt að komast af með mun minni kostnað.
Í því samfélagi sem við Íslendingar byggjum hefur þróunin orðið sú að einn kostnaðarsamasti þátturinn við jólin eru jólagjafir. Hátíðarmáltíðir með öllu tilheyrandi kosta sitt og svo bætast við þættir eins og jólaskraut og hugsanleg ferðalög. DV tók saman kostnað við jólahald, að frátöldum áramótum.

Jólagjafir kosta sitt
Jólagjafir eru oft stærsti kostnaðarliður fólks um jólin. Algengt er að fólk gefi tíu jólagjafir en auðvitað er allur gangur á því. Einstæðingar eru líklegri til að gefa færri en foreldrar sem eiga mörg börn og stóra fjölskyldu gefa stundum mun fleiri. Tíu er því ekki ólíklegra meðaltal en hvað annað.

Algengt er að foreldrar gefi börnum sínum frekar dýrar gjafir, sem kosta kannski í námunda við tíu þúsund krónur. Sumir gefa fyrir minna en aðrir margfallt meira. Þeim sem eru fjarskyldir eða eru kunningjar fá oft ódýrari gjafir. Ætla má að algengt verð fyrir jólagjafir sé um fimm þúsund krónur en auðvitað má gefa ódýrari og persónulegar gjafir fyrir minni pening.

Heildarkostnaður þess sem gefur tíu jólagjafir, sem að jafnaði kosta fimm þúsund krónur, er 50 þúsund krónur.

Allt um kostnaðinn sem fylgir jólunum í DV í dag.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 22:12

Bílvelta í Hrútafirði: Þrjár stúlkur lítið meiddar

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 19:21

Nafn hinnar látnu

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 13:00

Mogginn enn á framfæri almennings

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 12:50

21 hross dautt á Kjalarnesi

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 11:35

Hóta að senda hermenn til Gaza

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:35

Vorum skilin ein eftir í miðju hafi

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:20

Ágætis færð um landið

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:12

Kastaðist út úr bíl í Öxarfirði

Sunnudagur 28. desember 2008 kl 10:04

Kona um sextugt lést í umferðarslysi

Laugardagur 27. desember 2008 kl 20:21

Börn með krabbamein fengu tvær og hálfa milljón

Laugardagur 27. desember 2008 kl 20:07

Timburmenn: Fórnarkostnaður eða fáviska

Laugardagur 27. desember 2008 kl 16:36

Bættu bólfélagann

Laugardagur 27. desember 2008 kl 13:10

Hægt að sprengja útrásarvíkingana

Laugardagur 27. desember 2008 kl 12:24

Geir með 935 þúsund krónur á mánuði

Laugardagur 27. desember 2008 kl 11:23

Morðinginn vissi ekki af barni konu sinnar

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:55

120 látnir á Gaza

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:20

Bláfjöll lokuð en opið á Akureyri

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:09

Jónas: Ólafur Ragnar útrásarforstjóri

Laugardagur 27. desember 2008 kl 10:04

Varað við hálku

Laugardagur 27. desember 2008 kl 09:40

Róleg nótt - líkamsárás á Húsavík