Brynjólfur, til vinstri, var dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Grímseyingar íhuga nú hvort höfða eigi nýtt mál á hendur honum.
„Okkur fannst hann sleppa nokkuð vel,“ segir Garðar Ólason, sveitarstjórnarmaður í Grímsey, um dóminn yfir Brynjólfi Árnasyni, fyrrverandi sveitarstjóra Grímseyjarhrepps. Grímseyingar íhuga nú að höfða nýtt mál á hendur Brynjólfi þar sem þeir eru ósáttir við það hversu fá atriði ríkislögreglustjóri ákærði Brynjólf fyrir.
Brynjólfur var þann áttunda desember sl. dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir fjárdrátt og umboðssvik. Hann var sakfelldur fyrir tólf brot og gert að greiða hreppnum 13.6 milljónir króna í bætur þar sem ljóst þótti að brot Brynjólfs hefðu ollið Grímseyjarhreppi verulegu tjóni eins og segir í dómnum. Hreppurinn krafðist hinsvegar í upphaflegu kærunni að fá 27 milljónir í bætur en kært var fyrir 35 atriði.
Upp komst um málið í kjölfar umfjöllunar DV á þjófnaði hans á 12.900 lítrum af olíu. Í kjölfarið hófst rannsókn á bókhaldi hreppsins og kom þá margt misjafnt í ljós, eða 35 atriði sem sveitarstjórnin ákvað að kæra fyrir. Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra ákærði Brynjólf fyrir tólf þeirra. Garðar segir að ljóst sé að hreppurinn hafi orðið fyrir mun meira fjárhagslegu tjóni en Brynjólfur var dæmdur fyrir.
Garðar segir að meðal þeirra atriða sem ríkislögreglustjóri ákærði ekki fyrir séu kaup Brynjólfs á landmælingartæki sem kostaði fimm milljónir króna. Þá hafi tækjabúnaður í tengslum við tækið kostað um fimm til sex milljónir króna og því hafi hreppurinn samtals orðið af um tíu til ellefu milljónum króna vegna kaupa Brynjólfs á tækinu. Garðar segir að hreppnum hafi tekist að selja tækið aftur en aðeins haft upp úr því um fjórar milljónir þegar upp var staðið. Þá standi eftir fleiri brot sem Brynjólfur var ekki ákærður eða sakfelldur fyrir.
Garðar segir að hreppurinn sé með lögfræðing í málinu sem er að skoða réttarstöðu hreppsins. Hann segist eiga von á að ákvörðun um það, hvort höfðað verði nýtt mál, væntanlega liggja fyrir fljótlega eftir áramót.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning