Hæstiréttur Íslands hefur úrskurðað dóm Hérðasdóms Reykjavíkur yfir Jens R. Kane frá því 14. desember í fyrra ómerkan og vísað málinu aftur til héraðsdóms til aðalmeðferðar og dómsálagningar að nýju. Jens var fyrir héraðsdómi dæmdur í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi gegn fyrrverandi unnustu sinni, Veronicu Rincon frá Venesúela. Jens segir í samtali við DV vera ánægður með niðurstöðu Hæstaréttar en því væri enn ekki lokið. Hann heldur fram sakleysi sínu í málinu.
Meðal þess sem fram kemur í dómi Hæstaréttar í dag er að Rincon sem er spænskumælandi hafi gefið munnlega skýrslu á spænsku við aðalmeðferð málsins í héraði og var fenginn til starfa túlkur, sem ekki hafði hlotið löggildingu til að gegna því.Þá hafi eitt vitni, sem gaf skýrslu fyrir héraðsdóm, mætt á ný fyrir dóm og greint frá atriðum varðandi málið sem það var ekki innt eftir í fyrra skiptið. Telur Hæstiréttur ekki loku fyrir það skotið að þau atriði sem þar komu fram, geti haft áhrif á sönnunargildi framburðar Veronicu. Vegna þessa telur Hæstiréttur óhjákvæmilegt að ómerkja dóm Héraðsdóms Reykjavíkur og vísa því aftur til aðalmeðferðar og dómsálagningar á ný.
Átti sér engar málsbætur
Það var 14. desember í fyrra sem Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Jens R. Kane í átta mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi gegn fyrrverandi unnustu sinni. Ofbeldi sem átti sér stað 23.janúar í fyrra. Stúlkan, Veronicu Virginiu Sarcos Rincon frá Venesúela, sakaði Jens um að hafa slegið hana og sparkað í bakið á henni. Hún hafi þá flúið inn á baðherbergi og læst sig inni. Jens hafi þá sparkað upp baðherbergishurðinni, gripið um háls hennar með annarri hendi og haldið fyrir munn hennar með hinni. Rincon gat á þeim tímabundi ekki andað og greip til þess að bíta Jens í hendina. Eftir bitið mun Jens hafa tekið hana kverkataki með báðum höndum og slengt henni upp við vegg þannig að hún missti meðvitund. Verulega bar á milli frásögnum þeirra af atburðum næturinnar umræddu en héraðsdómur tók vitnisburð Jens ekki trúverðugan og sagði hann engar málsbætur eiga sér. Niðurstaða dómsins var að dæma hann í átta mánaða fangelsi og til að greiða Rincon 500 þúsund krónur í skaðabætur.
Jens undi dómnum illa á þeim tíma og sagði dóminn hafa keypt einhliða upplognar sakir á hann og dómnum yrði áfrýjað.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision