ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Stal þvagsýnum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:57 › 16. desember 2008

26 ára gamall bandarískur karlmaður hefur verið handtekinn í heimalandi sínu fyrir þjófnað á þvagsýnum. Maðurinn braust inn í geymslu þar sem sýnin voru og hafði tugi þvagsýna á brott með sér sem geymd voru í kæli, þar á meðal sitt eigið.

Ástæða þess að maðurinn stal sýnunum er sú að hann var sjálfur staðinn að neyslu fíkniefna en með þjófnaðinum vildi hann hylma yfir neyslu sína. Lögreglumenn náðu að hafa upp á manninum með því að skoða lista með nöfnum eigenda þvagsýnanna. Sýnin fundust á heimili mannsins en kælirinn fannst þó ekki.

Maðurinn hefur verið kærður fyrir innbrot, þjófnað og fyrir að eyða sönnunargögnum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.