Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Í neyð verður flest að vopni og sannaðist það í Miramar á Flórída í Bandaríkjunum. Vopnaðir menn veittust að Eric Lopez Devictoria, pítsusendli þar í borg, þegar hann var að sinna starfi sínu í mestu makindum.
Devictoria dó þó ekki ráðalaus og greip til þess sem var hendi næst sem var stór, rjúkandi heit pepperónípítsa. Hann þeytti pítsunni í einn ræningjanna og tók síðan á rás. Einu skoti var hleypt af, en Devictoria komst undan heill á húfi. Ræningjarnir voru handteknir skömmu síðar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu