„Nei, nei, það er ekki hægt. Þá gæti maður allt eins pakkað saman,“ segir Hafsteinn Gunnar Sigurðsson kvikmyndagerðarmaður spurður hvort hann óttist ekki samanburð við hinn reynda leikstjóra Óskar Jónasson. Hafsteinn er nefnilega með í bígerð kvikmynd byggða á skáldsögunni Hvíldardagar eftir Braga Ólafsson og, eins og Fréttablaðið greindi frá á sunnudaginn, er Óskar núna með í undirbúningi gerð sjónvarpsmyndar byggða á annarri bók Braga, Gæludýrunum.
Óskar hefur átt í viðræðum við Ríkissjónvarpið um að sýna myndina og er handritið komið langt á veg. Óvíst er hins vegar hvenær tökur hefjast. Handrit Hafsteins og Ottó Geirs Borg að Hvíldardögum er einnig langt komið og stefnan er að hefja tökur í ágúst á næsta ári. „Síðasti hluti handritsumsóknar liggur inni hjá Kvikmyndasjóði sem vonandi skýrist í byrjun janúar. Svo erum við bara að leita að meira fjármagni, til að mynda sækja um aðra styrki. En það er alltaf voðalega erfitt að segja til um þetta því það getur alltaf brugðið til beggja vona,“ segir Hafsteinn en Hvíldardagar er hans fyrsta mynd í fullri lengd. Engir leikarar hafa verið ráðnir í Hvíldardaga en Ólafur Darri Ólafsson fer með aðalhlutverkið í Gæludýrunum.
Bókin Hvíldardagar var fyrsta skáldsaga Braga, kom út árið 1999 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna auk þess að hljóta Menningarverðlaun DV. Bókin Gæludýrin kom út tveimur árum seinna og fékk einnig tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum