ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Óboðlegur niðurskurður í heilbrigðiskerfinu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:19 › 16. desember 2008
Steingrímur segir að afleiðingar af niðurskurðinum geti verið alvarlegar.

Steingrímur segir að afleiðingar af niðurskurðinum geti verið alvarlegar. Mynd: DV

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, segir það óboðlegt hversu mikill niðurskurður er boðaður í heilbrigðiskerfinu samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs. Steingrímur segir að samkvæmt frumvarpinu sé 200 milljóna niðurskurður boðaður á Sjúkrahúsinu á Akureyri og um 1.740 milljóna niðurskurður á Landspítalanum.

Steingrímur segir að afleiðingarnar af þessu geti verið alvarlegar og munu væntanlega leiða til verulegrar fækkunar starfa. Þannig verði heilbrigðistöryggi þjóðarinnar stefnt í hættu. Önnur umræða um fjárlögin fór fram á Alþingi í dag og voru heilbrigðismál þar fyrirferðamikil.

Steingrímur gagnrýndi það mjög að forsvarsmenn þessara fyrrgreindu stofnana hefðu ekki gert grein fyrir því hvernig niðurskurðurinn kæmi við starfsemi þeirra og hvernig þau geti hagað starfi innan þess ramma sem þeim er settur. Það hefði heilbrigðisráðherra ekki heldur gert og ekki heldur formaður heilbrigðisnefndar Alþingis.

Þuríður Bachman, þingmaður Vinstri grænna, sagði boðaðan heilbrigðsniðurskurð sársaukafullan og vanhugsaðan. Afleiðingarnar væru ekki fyrirséðar. Þó sé ljóst að tæplega 7 milljarða niðurskurður verði ekki bættur nema með fækkun starfsfólks og verri þjónustu. Félagsþjónusta verði undir miklu álagi sem og geðheilbrigðisþjónusta. Þá muni lýðheilsa versna og þetta séu tillögur sem munu koma í bakið á fólki.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.