Katrín Jakobsdóttir, VG, gagnrýndi í upphafi þingfundar í dag 4,4 milljarða króna niðurskurði til menntamála. Einnig er fyrirhugaður 1,5 milljarða króna niðurskurður til Lánasjóðs íslenskra námsmanna, rannsóknarsamningum á vegum Háskóla Íslands verður frestað og rekstrarkostnaður HÍ verður skorinn niður um 270 milljónir króna. Katrín sagði að 24 milljóna króna niðurskurður til háskólasetra á landsbyggðinni væri tilfinnanlegur þótt ekki væri hann mikill í krónum talið.
Katrín taldi niðurskurð til menntamála ganga þvert á áform ríkisstjórnarinnar um leiðir út úr kreppunni.
Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar, sagði þyngra en tárum tæki að standa að svo miklum niðurskurði til menntamála. Hann minnti á að útgjöld til menntamála hefðu aukist mikið undanfarin ár og væru þau með þeim hæstu sem um getur. „Ríkið fer þráðbeint á hausinn ef ekki verður skorið niður,“ sagði Sigurður Kári og bætti við að reynt væri að stíga varlega til jarðar í niðurskurðinum. „Það verður að skera niður og segja sannleikann eins og hann er.“
Álfheiður Ingadóttir, VG, gerði athugasemd við að formaður heilbrigðisnefndar og fleiri hefðu ekki verið viðstaddir umræðu um fjárlögin í gærkvöldi þegar rætt var um heilbrigðismál,. Ráðgert er að skera heilbrigðisútgjöld niður um tæpa 7 milljarða króna og 1,1 milljarður verður lagður á sjúklinga sagði Álfheiður.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna