ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Metsala á gjafakortum Þjóðleikhússins

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:30 › 16. desember 2008
Úr sýningunni Hart í bak sem verið hefur á fjölum Þjóðleikhússins í haust.

Úr sýningunni Hart í bak sem verið hefur á fjölum Þjóðleikhússins í haust. MYND Þjóðleikhúsið/Eddi

Sala á gjafakortum Þjóðleikhússins hefur tvöfaldast frá því á sama tíma í fyrra og hafa þegar selst tæplega fimm þúsund kort. Fjórða upplagið af gjafakortahulstrum fyrir Kardemommubæinn er væntanlegt úr prentun á allra næstu dögum en gjafakort á Kardemommubæinn rjúka út.

Almenn gjafakortasala er einnig með besta móti, auk þess sem mikil aðsókn er að sýningum Þjóðleikhússins. Í tilkynningu frá leikhúsinu segir að ljóst megi vera að leikhúsið, íslensk sköpun og menning sé þjóðinni ofarlega í huga nú um stundir.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.