ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

Ísland mesta olíuríki heims

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:24 › 16. desember 2008
Mynd DV: Kristinn Magnússon

„Ég sé fyrir mér vatnið okkar sem mikla auðlind auk þess sem við munum finna olíu,“ segir Þór Gunnlaugsson miðill í samtali við nýjasta tölublað Séð og heyrt. Þór viðurkennir að þær myndir sem hann sjái séu margar dökkar þótt eitt og annað sé jákvætt. Myndirnar birtast honum án fyrirvara og gefa til kynna hvað koma skal.

„Ísland verður líka mikil matarkista þegar kemur að landbúnaði. Við eigum gott með að framleiða mikið fyrir aðra. Vatnið verður mjög dýrt. Jóni Ólafssyni og fleirum mun farnast vel og þeir munu græða mikið. Þetta eru mikil verðmæti,“ segir Þór í Séð og heyrt og segist auk þess sjá olíu í miklum mæli.

„Það finnst olía sem er mikil auðlind. Hún finnst fyrr vegna góðrar tækni á næstum árum. Ísland verður eitt öflugasta olíuríki heims. Verður stærra en öll arabaríkin til samans. Um 2013 eða 2014.“

Meira í Séð og heyrt!



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.