ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

Illugi verður organisti

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:37 › 16. desember 2008
Illugi tekur stöðu organista í Flateyrarkirkju á aðfangadag.

Illugi tekur stöðu organista í Flateyrarkirkju á aðfangadag.

Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að bregða undir sig betri fætinum um jólin og taka stöðu organista í Flateyrarkirkju á aðfangadag. Frá þessu greinir fréttavefurinn Bæjarins besta á Ísafirði.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Illugi tekur stöðu organista í kirkjunni því hann stóð einnig vaktina í kirkjunni eftir snjóflóðið á Flateyri veturinn 1995. Þá var ég með öðrum stólum við orgelið þegar ég starfaði við verksmiðjuna Skelfisk. Ég hef hlaupið í skarð orgelleikara hjá kirkjunni áður á jólum þegar þau hafa lent í vandræðum með orgelleikara. Þau hafa verið svo hörmulega illa stödd áður að þau hafa þurft að leita til mín,“ segir Illugi og hlær í samtali við Bæjarins besta.

Frétt Bæjarins besta



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.