ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Íbúar Gasa á lyfjum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:04 › 16. desember 2008

Samkvæmt rannsókn eru það þúsundir ungra manna á Gasasvæðinu sem eru háðir verkjalyfjum vegna streitunnar sem fylgir því að búa á landsvæði þar sem eru ítrekuð átök Palestínumanna og Ísraela.

Námsfólk, verkafólk og aðrir kaupa verkjalyfið tramadol í stórum stíl. Það hefur svipaða virkni og morfín, en vægari. Einn þeirra sem stóðu að rannsókninni áætlar að um þrjátíu prósent karlmanna á aldrinum 14 til 30 ára noti lyfið reglulega og að allt að 15.000 manns séu háðir því.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.