Geir H. Haarde forsætisráðherra mælir í dag fyrir frumvarpi á Alþingi um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Frumvarpið felur meðal annars í sér hækkun hámarksútsvars um 0,25 prósentustig úr 13,03 prósentum af útsvarsstofni í 13,28 prósent.
Frumvarpið felur einnig í sér hækkun tekjuskatts um 1,25 prósentustig. Í skýringum við frumvarpið kemur fram að þessi hækkun tekjuskatts er ætlað að fjármagna eins milljarða aukaframlag í jöfnunarsjóð og greiðslur ríkissjóðs á fasteignagjöldum.
Þó frumvarpið sé ekki orðið að lögum telur Samband íslenskra sveitarfélaga eðlilegt að sveitarstjórnir taki afstöðu til þess í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár hvort heimild til hækkunar útsvars verði nýtt. Sveitastjórnir þurfa því að gera upp hug sinn fyrir 30. desember hvert útsvarshlutfallið verður og tilkynna það fjármálaráðuneytinu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð