ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Guðlaugur Þór: Agaleysi í ríkisrekstri

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:08 › 16. desember 2008
Guðlaugur Þór Þórðarson

Guðlaugur Þór Þórðarson

„Almenna reglan er sú að í ríkisrekstri hefur verið mikið agaleysi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra. Eftir ríkisstjórnarfund ræddi hann við blaðamenn um fyrirhugaðan niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Guðlaugur segir agaleysið ein af ástæðum þess að Íslendingar hafi lent í þeim erfiðleikum sem nú steðja að. Verið sé að skoða orsakir agaleysisins og bera saman mismunandi stofnanir því reksturinn hefur vissulega gengið mismunandi.

„Það er ekki lengur í boði, þetta sama fyrirkomulag, að bjarga sér á fjáraukalögum á hverju ári og þetta er nú bara eins og með allt annað, hvort sem það er rekstur heimilia eða fyrirtækja að menn þurfa að horfa í alla hluti og reyna að gera eins mikið og mögulegt er fyrir þá fjármuni sem eru til staðar,“ segir Guðlaugur og bætir við: „Ég held að það sé alveg ljóst að við Íslendingar höfum verið sofandi á verðinum í góðærinu.

Guðlaugur bindur vonir við að þrátt fyir mikinn niðurskurð samkvæmt fjárlögum verði heilbrigðisþjónustan ekki skert. Hann segir að nú sé í gangi vinna undir forrystu Péturs Blöndals og Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur þar sem litið er til þeirra leiða sem hin Norðurlöndin hafa farið í heilbrigðismálum og niðurstaða þeirrar vinnu væntanleg í byrjun næsta árs.
Hann getur þó ekkert fullyrt um að niðurskurðurinn bitni ekki á þeim sem minnst mega sín. „Við verðum bara að sjá hvað verður. En þetta eru markmiðin,“ segir hann.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.