ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Fær bætur fyrir ólöglega handtöku

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:17 › 16. desember 2008
Mynd: DV

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða karlmanni 200 þúsund krónur í bætur vegna ólöglegrar handtöku. Maðurinn var handtekinn þann 19. janúar 2006 ásamt tveimur erlendum mönnum eftir fund sem þeir áttu í Íslandsbanka.

Talið var að maðurinn væri viðriðinn tilraun til að selja Íslandsbanka falsaða bankaábyrgð. Manninum var haldið af lögreglu til næsta dags.

Í dómnum segir að rannsókn lögreglu hafi leitt til þess að maðurinn væri ekki viðriðinn tilraun til að selja falsaða bankaábyrgð og handtakan byggð á röngum upplýsingum. Maðurinn fór fram á að sér yrðu greiddar 700 þúsund krónur í skaðabætur. Héraðsdómi þótti hinsvegar hæfilegar bætur vera 200 þúsund krónur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.