ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW

Enginn vill sitja í kviðdómi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:15 › 16. desember 2008
Erfiðlega gengur að manna kviðdóm í máli Fritzl.

Erfiðlega gengur að manna kviðdóm í máli Fritzl.

Snurða hefur hlaupið á þráðinn í máli Jósefs Fritzl, en áformað hafði verið að málsmeðferð í því hæfist í janúar á næsta ári. Nú lítur út fyrir að tímaáætlanir geti farið úr skorðum því allr átta kviðdómendur og tveir varamenn hafa sagt sig frá verkefninu, einn af öðrum.

Erfitt getur reynst á jafnskömmum tíma og raunin er að setja saman nýjan kviðdóm og því illt í efni.
Það er ekki einfalt mál að segja sig frá starfi sem kviðdómari því það er borgaraleg skylda. Í austurríska dagblaðinu Heute segir að kviðdómarar og varamenn í máli Fritzl hafi allir borið við að þeim hafi verið ómögulegt að uppfylla skyldur sínar sem kviðdómarar vegna eigin fjölskylduskuldbindinga.

Óhætt er að segja að kviðdómarar hafi fundið smugu því nú um stundir er útskýring þeirra sú eina sem tekin er góð og gild samkvæmt austurrískum lögum þegar kemur að því að sleppa við störf í kviðdómi.
„En sannleikurinn er sá að enginn mun eiga létt með að hlusta á hryllileg smáatriði [máls Jósefs Fritzl] daginn út og daginn inn, eða óskar sér þess yfirhöfuð að verða tengdur svona máli,“ sagði lögfróður maður í viðtali við blaðið.

Ákærurnar á hendur Fósef Fritzl hljóða upp á manndráp, nauðgun, sifjaspell, frelsissviptingu og kerfisbundna misnotkun um tuttugu og fjögurra ára skeið. Í kjallara húss síns í Amstetten í Austurríki hélt Jósef Fritzl dóttur sinni, Elísabetu, fanginni í tuttugu og fjögur ár. Hann eignaðist með henni sjö börn, af þeim komust sex á legg, en einum dreng varð ekki lífs auðið og brenndi Jósef lík hans í brennsluofni í kjallara hússins. Jósef Fritzl er einn hataðasti maður Austurríkis og hefur fengið viðurnefnið „skrímslið“.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.