Á sama tíma og sveitarfélög leita leiða til að skera niður í rekstri eru Grindvíkingar í sókn. Meirihlutinn í bæjarstjórn Grindavíkur ætlar, samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2009, að eyða rúmum þremur milljónum í endurbyggingu á vefsíðu Grindavíkurbæjar. Málið varð tilefni til snarpra umræða á síðasta bæjarstjórnarfundi þar sem sjálfstæðismenn, sem eru í minnihluta, mótmæltu harðlega.
„Grindavíkurbær getur auðveldlega lifað við gömlu heimasíðuna eitthvað áfram, ekki þarf að eyða í hana nú fjármunum að upphæð 3.165.500 krónum án virðisaukaskatts. Þetta er gert þó vitað sé að vinna við fjárhagsáætlun sé í fullum gangi og þurfi að minnka hallarekstur í samkomulagi við minnihluta,“ segir í bókun sjálfstæðismanna en þeir lögðu einnig fyrir á sama fundi að laun bæjarfulltrúa, nefndarmanna og bæjarstjóra verði lækkuð sem nemi fimmtán prósentum. Sú tillaga var felld með fjórum atkvæðum.
Fulltrúar B- og S-lista furðuðu sig á afstöðu sjálfstæðismanna og sögðu þá þröngsýna í þessu brýna máli: „Það er með ólíkindum hve þröngsýnir sjálfstæðismenn eru í þessu brýna máli. Til að efla byggðina þarf að markaðssetja hana og efla alla kynningu Grindavíkurbæjar á heimasíðu bæjarins. Hún er lykill aðkomumanna að bænum og nauðsynlegur miðill líka fyrir heimamenn.
Upplýsingar um atvinnulíf, ferðaþjónustu og alla þjónustuþætti sveitarfélagsins þurfa að vera mun aðgengilegri en í dag. Það kom glögglega fram í fundarröð bæjarstjórnar með hagsmunaaðilum atvinnulífsins í Grindavík að heimasíðan skiptir mjög miklu máli í allri markaðssetningu á ferðatengdri þjónustu í bænum. Með góðri markaðssetningu er hægt að auka tekjur bæjarins og fjölbreytni tækifæra sem væntanlega auka tekjur Grindavíkurbæjar.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð
Harmleikur í Hafnarfirði: Búið að yfirheyra hinn grunaða
Snorri í Betel: „Ég met þetta þannig að Biblían sé að segja satt“
Segir Bjarna Ben leika trúð í Vafningsmálinu
Foreldrar sagðir æfir vegna skrifa Snorra í Betel